Myndir - Photos
Morgunblaðið
Alþjóðamarkaður LME
Gamalt blogg
23.01.2012 17:13:46 / steini

22 jan 2012

Í dag er gott veður hér á Reykjavíkursvæðinu, en það er búið að vera umhleypingasamt að undanförnu og meira snjóað en mörg undanfarin ár.
 
Þá eru þingmenn langt komnir með að fella niður ákæru á hendur Geir H Haarde fyrir afglöp í starfi í aðdraganda hrunsins. Ekki það að ég hafi hrifist af þeirri ákæru í upphafi eða það að hann yrði einn ákærður, heldur fyrir það hvers konar bjánaskapur er endalaust í gangi niðri í Alþingi hafa þeir ekkert betra að gera. Var það ekki Landsdómur sem átti að fjalla um hans mál og hvað er Alþingi að grípa þar inn í. Er samtrygging þingmanna svo mikil að það sé ekki hægt að koma böndum á þá ef þeir skyldu nú hafa framið lögbrot, nú eða það að þeim yfir höfuð detti nokkurn tíman í hug að segja af sér þrátt fyrir afglöp. Þetta er sjálfsagt Íslenska genið ég á það ég má það ég er bestur og geri aldrei neitt rangt.

Ergelsið lagast nú heldur ekki vegna gengi Íslenska landsliðsins í handbolta sem nú er að keppa á Evrópumótinu í Serbíu og hef ég aldrei sé liðið eins lélegt síðustu árin og í þeim leikjum sem búnir eru, að geta tapað fyrir Slóveníu með tvo leikmenn sem gátu eitthvað hlítur að teljast kraftaverk út af fyrir sig hvar eru þessir fantagóðu markmenn sem við áttum eru þeir búnir að yfirgefa búkana sem þarna eru inná ég bara spyr að verja fimm til sex mörk í leik er algjör skömm. Nú þurfa þeir að spýta í lófana og vinna leiki til að gleðja landann.

Farinn var hafnarrúntur um Reykjavíkurhöfn og voru fáir bátar við bryggju að þessu sinni.

Mynd frá Reykjavíkurhöfn unnið við viðhald á frystitogaranum Venusi Mynd frá Reykjavíkurhöfn, gamall bátur í slipp.

HUE


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2012 17:32:03 / steini

11 jan 2012

Þá er nýtt ár gengið í garð og byrjað að uppfylla heitin sem strengd voru um áramótin. Sumir kaupa árskort í líkamsræktastöð aðrir ákveða að synda nú eða ganga. Hjá meirihluta þeirra sem strengja heitin, eru þau orðin marklaust plagg eftir tvær til þrjár vikur og kannski mest fyrir það hversu leiðinlegt þetta allt saman er. Það vantar eitthvað til að gera hlutina skemmtilegri eins og hermi þar sem hægt er að velja áskoranir td: gönguleiðir vítt og breytt um heiminn eða klífa fjöll og þá breytist álagið eftir því sem landslagið breytist.

Nú er Hrund haldin á vit ævintýra, en hún hélt áleiðis til Indlands í gær þar sem hún mun dvelja í um þrjár vikur við einhverskonar sjálfboðastarf og þaðan fer hún til Kenía og mun dvelja þar í um fimm vikur en að því loknu koma heim. Hún ætlað að reyna að blogga þegar hún kemst í tölvusamband á http://hrundher.blogspot.com/ . Munur að vera ungur í dag og geta leyft sér slík ævintýri mikið öfunda ég hana.
 
Var í Laxá í dag en þar er verið að ljúka klæðningu urtan á jöfnunartank fyrir Laxá II og er um viku vinna eftir.

Jöfnunartankur Laxá II Jöfnunartankur Laxá II

Það er búið að vera hundleiðinlegt veður undanfarna daga, leiðinleg færð og tafir vegna farartækja sem eru fastir og á sumardekkjum.
 
HUE        

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2012 20:44:12 / steini

31 des 2011


2011 ANNÁLL HUE Í MYNDUM /
máli


Des 2011Des 2011Des 2011Des 2011Des 2011Des 2011Des 2011
Nóv 2011Nóv 2011Nóv 2011Nóv 2011Nóv 2011Okt 2011Okt 2011
Okt 2011Okt 2011Okt 2011Okt 2011Okt 2011Sept 2011Sept 2011
Sept 2011Sept 2011Sept 2011Sept 2011Sept 2011Sept 2011Ágúst 2011
Ágúst 2011Ágúst 2011Ágúst 2011Ágúst 2011Ágúst 2011Ágúst 2011Júlí 2011
Júlí 2011Júlí 2011Júlí 2011Júlí 2011Júní 2011Júní 2011Júní 2011
Júní 2011Júní 2011Júní 2011Júní 2011Maí 2011Maí 2011Maí 2011
Maí 2011Maí 2011Maí 2011Maí 2011Maí 2011Maí 2011 Maí 2011
Apríl 2011Apríl 2011Apríl 2011Apríl 2011Apríl 2011Mars 2011Mars 2011
Mars 2011Mars 2011Mars 2011Febrúar 2011Febrúar 2011Febrúar 2011Febrúar 2011
Febrúar 2011Febrúar 2011Janúar 2011Janúar 2011Janúar 2011Janúar 2011Janúar 2011

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gömlu árin.

Kveðja HUE


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2011 21:02:26 / steini

20 des 2011

Þá styttast í jólin einu sinni enn og er jólaundirbúningi lokið að mestu leyti í Gulaþinginu. Ótrúlegt hversu tíminn er fljótur að líða, og mér finnst svo stutt frá síðustu jólum kannski kemur það með aldrinum að tímaskynjunnin breytist.

Fór norður í Laxá í gær en þar var síðasti verkfundurinn fyrir áramót varðandi verkefnið að klæða jöfnunartankinn fyrir Laxá II. Ennþá er eftir að ljúka hluta verksins og verður verkinu að fullu loki í endan á janúar.

Jöfnunartankurinn fyrir Laxá II Jöfnunartankurinn fyrir Laxá II

Frestun varð á flugi til Reykjavíkur vegna óhagstæðra skilyrða á Reykjavíurflugvelli og var kominn til baka um hált níuleytið.

Þá er blessaður karlinn hann Kim Jong-il forseti Norður Kóreu allur, en hann lést 19 des. Samkvæmt myndum frá Norður Kóreu virðist alþýða landsins syrgja forsetan fyrrverandi af þvílíku ofstæki að halda mætti að hann hafi staðið sig afburðar vel í starfi. Má það heita með ólíkindum hvað aðallinn í Norður Kóreu getur blekkt pöpulinn, aðallinn sem lifir í vellystingum pragtuglega étur stórsteikur og kavíar daglega sem þeir skola niður með koníaki á meðan pöpullinn grefur upp rætur og veiðir rottur til að tóra. Ekki skrítið að aðallinn þurfi á fjölmennum her að halda til að hafa hemil á líðnum, en herinn í Norður Kóreu er sá fjórði fjölmennasti í heimi. Gott fyrir Norður Kóreu að sá sem tekur við er víst yfirburðar stjórnandi.  

Gleðileg jól.  Jólasveinar  HUE

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2011 19:40:40 / steini

10 des 2011

Fór á tónleika í Bústaðarkirkju á fimmtudaginn var og hlustaði þar á jólatónleika sem voru í boði Veritas Capital og Distika. Þetta var ánægjuleg kvöldstund þar sem Vox Feminae og stúlknakór Reykjavíkur ásamt einsöngvurunum Maríusi Sverrissyni og Hönnu Björk Guðjónsdóttur sungu undir styrkri stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Að söng loknum var boðið upp á kakó og meðlæti í safnaðarheimili kirkjunnar.

Var á aðventutónleikum Karlakórs Reykjavíkur í Hallgrímskirkju og voru þeir hreint út sagt frábærir, einsöngvari með kórnum var Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzosópran sem stóð sig feykileg vel.

Karlakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju. Karlakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju.

Þrjár af dætrunum og barnabarn héldu á miðvikudagskvöldið til Boston þar sem fata skyldi sig rækilega upp þar sem mér skyldist að þær ættu bara rétt flíkurnar sem þær stóðu í utan á sig. Samt fannst mér ábendingin skjóta skökku við þegar ég sá yfirfulla skápa af fötum viðkomandi, en það var víst gamalt drasl sem löngu var farið úr tísku, en hafði kannski aldrei verið notað.

HUE

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2011 14:34:29 / steini

27 nóv 2011

Nú er jólabaksturinn hafinn og í gær var kleinudagur í Gulaþinginu og í dag er aftur á móti laufabrauð skorið út og steikt. Mörgum finnst bakstur og steiking laufabrauðs ómissandi þáttur í undirbúning jólanna og hjá flestum ef ekki öllum er laufabrauð aðeins steikt á þessum tíma ársins. Ekki væri mikið varið í hangikjötið um jólin ef laufabrauðið væri ekki sem meðlæti.
  
Kleinubakstur í gangi Berglind sá um baksturinn. Unnið við laufabrauðs útskurð.

Vinnan gengur sinn vana gang og verkefni ársins 2011 hjá O.T. eru langt komin og byrjað að huga að verkefnum næsta árs. Var á þvælingi í síðustu viku fór norður í Laxá og seinna í vikunni í Sogsstöðvar og á Þjórsársvæðinu. Sinnti svokölluðum Innri Úttektum í vikunni og tók út tvær verklagsreglur sem viðkomendur stóðust með prýði, en hluti af starfsmönnum L.V. sinna þeim úttektum á hverju ári hjá fyrirtækinu.

HUE.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2011 15:09:06 / steini

15 nóv 2011

Í síðustu viku voru prófanir í gangi í Laxá II bæði vegna nýju aðrennslispípunar og vélasamstæðunnar. Við áfyllingu á aðrensslispípuna kom í ljós að betrumbæta þarf fráganginn þar sem GRP pípan mætir stálstútum við inntak og jöfnunartank og var fenginn sérfræðingur frá Noregi (þaðan sem pípan er hönnuð) til að leggja á ráðin með næstu skref.
 
Vélarsamstæðan var keyrð upp í 4 MW og gerð á henni útsláttarprófun sem tókst vel, frekari prófanir verða gerðar seinna. Nú verður vélin látin rúlla á þessu álagi þar til endurbótum við pípuendana verður lokið. Umbótum við jöfnunartank Laxár II miðar orðið ágætlega áfram og er smásaman að komast mynd á hvernig hann mun líta út eftir að hafa verið einangraður og klæddur.
  
Prófunum á árloku II við Þingvallavatn er að mestu lokið og er búið að þurr og blautprófa lokuna og ekkert óvænt kom uppá. Verður nú gengið frá svæðinu fyrir veturinn og síðan hefst vinna við seinni lokuna næsta vor.

Frá árlokum við Þingvallavatn. Frá árlokum við Þingvallavatn.

HUE

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2011 17:27:38 / steini

5 nóv 2011

Er staddur í Laxárvirkjun II í blíðskapar veðri sunnanátt og hlíindum, en unnið er við að setja búnað í rekstur sem undanfarna mánuði hafði verið endurnýjaður eða endurbættur þar á ég við aðrennslispípu og jöfnunartank ásamt hverfilshjóli sem fór erlendis til viðgerðar þar sem sprungur höfðu myndast í fimm af blöðum hjólsins.
Þegar fyllt var á aðrennslispípuna kom í ljós leki á inntaksstútnum við stífluinntakið og var þá fylling stöðvuð og pípan vatnstæmd og síðan hafist handa við að grafa þar frá og finna hvað lekanum olli. Lokið var viðgerð á laugardaginn, en prófanir hefjast ekki fyrr en á mánudag þegar kunnáttumenn á vél og rafbúnað stöðvarinnar eru til staðar.

Mynd frá árloku II við Þingvallavatn. Mynd frá Laxá II
 
Verkefnið við árlokur Þingvallavatni sem unnið var við á þessu ári er að ljúka og lítið eftir nema prófanir á lokunni sem unnið var við þetta árið. Verkið hefur dregist á langinn af ýmsum ástæðum, en því átti að vera lokið í síðasta lagi í byrjun okt.

Annas er bara allt gott að frétta og næg verkefni frammundan.

HUE 

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2011 18:08:46 / steini

29 okt 2011

Var að koma frá því að skoða hið glæsilega nýja fjölnota varðskip Íslendinga Þór sem er til sýnis í dag og næstu daga og liggur við Miðbakkan í Reykjavíkurhöfn vesturhöfninni. Fjöldi fólks var að skoða skipið og greinilegt að landinn var spenntur fyrir hinu nýja skipi sem á eftir að koma að miklu gagni.

Fór í heimsókn að Árteigi í Aðaldal (undir Kinnarfjöllum) þar sem framleiddar eru rafstöðvar knúnar vatnsafli. Hverflarnir / túrbínur (aðallega fransis og  pelton) sem aðallega eru af minni gerðinni eru framleiddir (ar) í Árteigi, en síðan kaupa þeir rafalana og einhvernr stýribúnað. Rafstöðvarnar eru mikið notaðar sem heimarafstöðvar og einnig til framleiðslu inn á landsnetið nú eru um 70 til 80 í gangi víðsvegar á Íslandi auk þriggja í Grænlandi og einnar í Færeyjum.

Mynd tekin um borð í nýja varðskipinu Þór. Mynd af rafstöð sem stendur í túnfætinum við Árteig í Aðaldal.

Upphaf framleiðslunar nær aftur um rúma hálfa öld þegar Jón Sigurgeirsson í Árteigi hóf smíði á rafstöðvum. Nú eru það synir hans Eiður og Arngrímur sem starfrækja verkstæðið og framleiða um 3 til 4 rafstöðvar á ári.
Fengum að skoða rafstöð (virkjun) sem stendur í túnfætinum við Árteigi og er um 450kW og aðra sem þeir reistu í hlíðinni fyrir ofan Árteig í um 250 metra hæð, sem þeir gangsettu 2008 og er aflgetan hennar um 750kW.
Mjög skemmtileg heimsókn til þeirra bræðra í Árteigi og eru þeir greinilega miklir hugsjónamenn sem láta verkin tala og létu ekki bankahrunið slá sig út af laginu.
Svo voru veitingar á heimsmælikvarða.

HUE    

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2011 21:31:18 / steini

19 okt 2011

Vorum að koma frá Berlín þar sem við dvöldum í um viku tíma eða frá tólfta til nítjánda okt.
Flugum með Iceland Express bæði út og heim og stóðst brottför og koma upp á mín bæði flugin. Eina sem mátti setja út á flugið voru þrengslin á milli sæta.
 
Í vor henti skondið atvik þegar ég kom með flugi Icelandair frá Ósló. Þegar ég gekk inn í vélina sá ég að hún hét Hekla, en þegar flugfeyjan kynnti öryggisatriðin bauð hún alla velkomna um borð í Öskju. Ég spurði flugfreyju hversvegna við værum boðin velkomin um borð í Öskju ef flugvélin héti Hekla, sagðist hún skyldu athuga málið sem hún gerði með því að fara yfir pappíra og enda síðan frami í flugstjórnarklefa og kom síðan til baka og sagði að þetta væri víst rétt vélin héti Hekla, en það hefði verið afhentir vitlausir pappírar og vélarnar væru svo líkar að það skipti engu máli upp á öryggisatriðin. Ég hugsaði til farangurs og nafnalista farþega hvort það væri í lagi og einnig alls öryggisins sem talað er um í flugi. 

Höfum ferðast mikið um borgina bæði gangandi á útsýnisbátum á ánni Spree og með almenningssamgöngum, sem eru einkar þægilegar í alla staði. Skoðuðum leifar af múrnum sáluga (The Wall), sem skyldi af austur og vestur Berlín og má það hafa verið ótrúlega undarleg aðgerð þeirra ríkja sem réðu, þar sem margar fjölskyldur tvístruðust er þær lentu sitthvoru meginn múrsins.

Frá Berlín / The Wall. Frá Berlín / The Wall.

Fórum útsýnisferð með bát sem siglir um Spree ána sem rennur gegnum Berlín og frá þeim sjónarhóli er mjög gott að skoða borgina, einnig liggja skurðir frá Berlín og alla leið til Baltic See (Austrsjóinn).
Búin að skoða mikið af byggingum, en best fannst mér að fara með loftbelg upp í rúma eitthundrað og fimmtíu metra og sjá yfir alla borgina í frábæru útsýni, en áður hafði ég farið upp í útsýnisturninn vid Alexzanderplatz sem er rúmir 200 metrar en útsýnið var ekki eins gott vegna ryks á gluggarúðunum.

Horft yfir Berlín úr loftbelg. Frá Berlín mynd tekin úr loftbelg

Allstaðar þar sem farið er að skoða kostar inn og öllum finnst sjálfsagt að borga fyrir, því það kostar jú að halda hlutum við og einnig að borga þeim laun sem þar vinna. Heima þykir það óeðlilegt að rukka ferðamenn fyrir að fá að skoða gersemar, en allir skilja að ef ekki er rukkað fyrir þjónustu sem slíka bitnar það að lokum á ferðamannaiðnaðinum og umhverfið drabbast niður.
Berlín er borg sem vert er að heimsækja á lífsleiðinni þar er fjöldi safna og fagurra bygginga sem segja sögu borgarinnar á friðar og ófriðartímum sem hægt er eyða tíma í að skoða og ekki var hægt að kvarta undan veðrinu, en það var sól og blíða alla dagana og hiti frá 12 og upp í 16°C

HUE

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2011 15:10:35 / steini

8 okt 2011

Flaug norður á Akureyri á miðvikudaginn var en þar hafði snjóað um nóttina og var alhvítt yfir að líta og um 10 cm þykkt snjóalag. Frá Akureyti var haldið að Laxá II þar sem framkvæmdir eru í gangi sem ég hef umsjón með, en það er við endurnýjum aðrennslispípu og er þeim verkþætti  lokið og á réttum tíma verktakinn Þ.S Verktakar frá Egilsstöðum stóðu sig vel bæði hvað vinnu og umgengni snertir.
Hinn verkþátturinn sem ég kem nærri er endurbætur á Jöfnunartank og átti þeim verkþætti að vera lokið fyrir miðjan mánuðinn, en vegna ófyrirséðrar aukningar á sandblæstri hefur sá liður seinkað verkinu þótt allir geri sitt besta til að halda tímaáætlun verktakinn við sandblástur er Stjörnublástur frá Seyðisfirði. 

Horft í áttina að Akureyri á miðvikudaginn 5 okt. Mynd af íbúðarhúsum við Laxárvirkjun.

Frá Laxá II var haldið austur í Fljótsdalsstöð til að skoða með heimamönnum leiðiskóflur vélar6 sem farnar eru að láta á sjá álagsmeginn (hamraðar) og verður nú skoðað og reynt að geta sér til um hvað veldur. 

Mynd af leiðiskóflu vélar 6 Fljótsdalsstöð Mynd af leiðiskóflu vélar 6 Fljótsdalsstöð

Í vikunni voru kartöflurnar teknar upp svona áður en fer að frysta að ráði og var uppskeran vonum framar.

HUE

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2011 19:52:21 / steini

28 sept 2011

Eftir heimkomuna frá Tyrklandi þar sem slakað var á og legið í leti hófst vinnan að nýju mánudaginn nítjánda september. Farið var norður í Laxá II þar sem styttist í verklok við endurnýjun á aðrennslispípunni og er aðeins eftir að ganga frá jarðvegi umhverfis og yfir pípuna.
 
Annar verkþáttur sem unnið er að samtímis eru endurbætur á jöfnunartank Laxá II og hefur það verk tafist nokkuð vegna aukningar á vinnu við tæringavarnir. Vonast er til að verklok verði í viku 43 og þá geti vélarsamstæða Laxá II farið að mala gull.

Verið er að ljúka við frágang á jarðvegi yfir aðrennslispípuna við Laxá II. Inni í jöfnunartank við Laxá II

Við árlokur Þingvallavatni er búið að ljúka viðgerð á steypuskemmdum og stáli og á verkstæði Verkvík / Sandtak Hafnarfirði er verið að byrja yfirborðsmeðhöndlun á lokunni til tæringavarnar.  Áætlað er að verklok á þessum verkþætti verði í lok október og seinni lokan síðan tekin árið 2012.

Kveðja HUE 

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2011 10:49:24 / steini

17 sept 2011

Ég ætla að byrja á því að óska Karólínu Rós Ólafsdóttur til hamingju með þriggja ára afmælið þann 16 sept, kveðja afi og amma Gulaþingi.

Erum í sumarfríi á sólarströnd Tyrklands nánar tiltekið á hóteli sem heitir La Blanche og er í Turgutreis. Á hótelinu er allur aðbúnaður til fyrirmyndar bæði matur, gisting og strandsvæðið.

Mynd úr hótelgarði La Blanche hótelsins í Turgutreis. Horft á haf út af ströndinni við Turgutreis.

Fórum siglingu með strönd Bodrum skagans á milli Turgureis og Bodrum, það var stoppað á nokkrum skoðum til að skoða sig um í landi og svo líka til að fá sér sundsprett í sjónum. Sól og blíða hefur verið alla dagana og hiti farið upp undir sársaukamörk, þá hefur verið hægt að færa sig til í örlítinn vind til að láta sér líða vel.
 
Sá að Holllendingur var að lesa bók Arnalds Indriðasonar Maandagskinderen, sem ég veit ekki hvað heitir á Íslensku og sagðist hafa gaman af og mælti með henni, notaleg tilfinning þegar landinn er að gera góða hluti á erlendri grundu.

Mynd úr ferð um skagann milli Turgutreis og Bodrum. Mynd úr ferð um skagann milli Turgutreis og Bodrum.

Þegar þetta er skrifað erum við að bíða á hótelinu eftir rútunni sem flytur okkur út á flugvöllinn við Bodrum, þaðan eigum við síðan að leggja af stað til Íslands um kl 16:30 að Íslenskum tíma og lenda í Keflavík um kl 22:30 eða eftir um 6 klst flug.
Fleiri myndir á slóðinni http://www.flickr.com/photos/unsteinn/sets/72157627465077057/ 

Kveðja HUE

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2011 14:04:43 / steini

09 sept 2011

Fór í brúðkaup Hermanns Þ Marinóssonar og Önnu K Magnúsdóttur sem gefin voru saman í Skálholtskirkju af séra Vigfúsi Þór Árnasyni presti í Gravarvogskirkju. Athöfnin í Skálholtsdómkirkju var látlaus og falleg og greinilegt að presturinn hafði framkvæmt slíka athöfn áður. Síðan var heljarinnar veisla í Þrastalundi þar sem hver rétturinn af öðrum var töfraður fram, og á milli voru flutt skemmtiatriði og ræður sem féllu vel í kramið, lauk síðan veislunni með dansleik sem stóð fram á nótt.

Brúðguminn ásamt föður sínum. Brúðhjónin skera brúðartertuna.
   
Fyrir leikmann eins og mig, sem aldrei hefur fyrr í Skálholtsdómkirkju komið varð ég fyrir vonbrigðum með hversu fátæklega kirkjan er skreitt munum að innan utan glæsilegrar altaristöflu eftir Nínu Tryggvadóttur og steindra glugga eftir Gerði Helgadóttur. Ég hélt að í kirkjunni væru fögur djásn sem bæru vitni um þann virðugleika sem hún stendur fyrir. Annað sem kom mér á óvart var hljómburðurinn, þeir sem sátu aftan miðju heyrðu ekkert hvað presturinn sagði, en þess utan hljómaði söngurinn vel.
 
Þegar þetta er skrifað erum við Heiða stödd á strönd Tyrklands nánar tiltekið í Turgutreis á Bodrumskaganum sem liggur að Aegean Sea sem er innhaf Miðjarðarhafs, þar látum sól og hlýja vinda leika um okkur.

Mynd úr hótelgarðinum á La Blanche í Turgutreis. Mynd úr hótelgarðinum á La Blanche í Turgutreis.

Kveðjur úr sólinni í Turgutreis HUE    


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2011 16:01:10 / steini

28 ágúst 2011

Um síðustu helgi lá leiðin í Borgarfjörð til berjatínslu nánar tiltekið í landi Grenja. Um átta lítrar af aðalbláberjum höfðust upp úr krafsinu, en erfitt er fyrir gleraugnagláma að athafna sig sökum þess að aðalbláberin eru mest inni í birkikjarrinu, og eyddi undirritaður jafnvel lengri tíma í að leita gleraugnana, en að tína berin.

Vinna við niðurlagningu aðrennslispípu við Laxá II miðar vel og er aðeins eftir að leggja síðustu eininguna sem tengist við jöfnunartankinn og verður það gert strax eftir helgi. Unnið er á fullum kraftir við að sandblása jöfnunartankinn, en það er mjög háð veðráttu hvernig því verki miðar fram. Meðan sandblástur er í gangi og vinna þarf utan á jöfnunartanknum veldur það umferðartruflun fyrir nærsveitunga við Laxá II, sem hafa tekið þeim truflunum með einstöku umburðarlindi. Áætluð verklok við Laxá II er í byrjun októbermánaðar.

Síðasta GRP pípueiningin tengd við inntaksstút stífluinntaks. Verið er að sandblása jöfnunartankinn við Laxá II.

Viðgerð og endurbætur á árlokum Þingvallavatni miðar áfram og áætluð verklok eru í októbermánuði. Skipta þurfti um allan lokuskjöldinn sökum þess hversu tærður hann var orðinn vatnsmgeinn á lokunni.

Gamli lokuskjöldurinn á árlokunni var orðinn illa tærður. Suðuvinna í gangi hjá Vélsm Suðurlands á nýja lokuskildinum.

HUE 

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
Hálslón Kárahnjúkum
Landsnet raforkuflutningur
Heimsóknir
Í dag:  305  Alls: 147887
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti