Hvammsmel 18 des
2005.
Héðan úr Fljótsdalnum er
allt gott að frétta, veður verið risjótt, en nú er suðlæg átt og
hiti um frostmark. Verktaki KAR-30 þar fóru síðustu starfsmennirnir
heim á leið í dag í jólafrí.
Fosskraftsmenn eru að fara
að tínast í jólafrí. ATB Riva (vinna í botnrásum Kárahnjúkastíflu.)
starfsmenn fara heim 22 des einnig DSD
starfsmenn.
Fór ásamt konunni til
Frankfurt í helgarferð 8 des og kom til baka 12 des farið var til
að skoða og finna jólastemminguna sem þar virkilega ríkir. Einnig
var farið á söfn, en nóg er af þeim í Frankfurt. Gist á hóteli sem
heitir Bristol og er við hliðina á aðaljárnbrautastöðinni ágætis
hótel vel staðsett til gönguferða niður í miðbæ. Mér skilst að um
140000 manns búi í Frankfurt og eru þar allmargar mjög háar
byggingar td: Main Tower sem er um 200 metra hár og með góðum
útsýnisturni, þar átti að fá sér að borða, en öll borð upp pöntuð
alla helgina, panta þarf borð þar með að minnsta kosti viku
fyrirvara.
Annars er verðlag á mat
þegar farið er út að borða um það bil hálfvirði miðaða við hér
heima.
Fórum skoðunarferð til
Wiesbaden og litið á jólamarkaðinn þar og var hann alveg eins og í
Frankfurt, en um 45mín akstur er með lest frá Frankfurt til
Wiesbaden.
Að lokum
Gleðileg jól
Kveðja HUE