Tenglar
Myndir.
Veðurstofa Íslands.
Morgunblaðið.
Alþjóðamarkaður LME
31.01.2006 21:35:03 / steini

31 jan 2006

Sælt veri fólkið.

 

Þriðjudagurinn 31 jan er runninn upp með blíðskapar veðri suðlægri átt og 8°C hita sem verður að teljast gott miðað við árstíma, en blíðu veður var alla seinustu viku.

Af vinnu í Fljóstdalnum er all gott að frétta stöðvarhúskranarnir komnir upp og styttist í prófun þeirra. Í gær var brúkraninn uppi í Botnrásarhvelfingu álagsprófaður og reyndist allt vel.

Af verkefninu KAR-36, yfirverktaki DSD er það helst að frétta að fyrstu röraeiningu fyrir fallpípu 2 var slakað niður að kvöldi sunnudags og gekk það ágætlega, vonandi markar það tímamót og verður til þess að verkið komist á fullan skrið í fallpípuklæðningunum. Annars miðar þeim þokkalega niðri í stöðvarhúsi og eru langt komnir með deilinguna að vélum 1,2,3, og byrjaðir á deilingu fyrir 4,5,6.

Yfirmenn frá DSD í Þýskalandi hafa verið hér í nokkra daga til að fylgjast með framvindu mála og sýnist mér að það hafi góð áhrif.

Borverkið gengur þokkalega, en TBM1 miðar alltaf best en hann borar frá Teigsbjargi og í áttina að aðgöngum 2.

Annars er það að frétta af skemmtanalífi hér í Fljótsdalnum, að þorrablót var haldið í Végarði og þótti heppnast í alla staði vel, jafnvel dansfælnir voru dregnir út á gólfið og þóttu sýna góða takta, í það minnsta voru engir stórslasaðir eftir.

 

Kveð að sinni Hermann U Emilsson.

 

 

:haha::evil:8|



 



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 19:57:40 / steini

23 jan 2006

Sælt veri fólkið.

 

Þá er mánudagurinn 23 jan genginn í garð. Á laugardaginn fórum við Heiða á þorrablót, sem er haldin til skiptins í heimahúsi meðal nokkura frændsystkina og var þar ekta þorramatur á borðum.

Úr Fljótsdalnum er allt sæmilegt að frétta. Allt gengur samkvæmt áætlun með KAR-30 sem er vélaniðursetning. Annað er uppi á teningnum hjá KAR-36 sæmilega gengur hjá þeim niðri í Stöðvarhúshvelfingu, en allt á afturfótunum uppi í lokahvelfingu (Valve Chamber) uppi á Teigsbjargi, þar hefur aðeins tekist að slaka 2 röraeiningum niður og það var löngu fyrir jól, síðan þá hafa þeir verið að endurhanna slökunar/lyftibúnaðinn (lifting structure) og voru að prófa hann í síðustu viku og allt leit vel út.

Slaka átti þriðju einingunni fyrir PS1 niður aðfaranótt sunnudags samtals þungi um 65 tonn, en þá gerðist það sama og áður að vírinn á spilinu skarst inn í lagið undir með þeim afleiðingum að stöðva þurfti slökuninna og bíða eftir sérfræðingi frá spilframleiðanda.

Sem starfsmaður LV botna ég  ekkert í því af hverju toppar LV fara ekki að lemja í höfuðið á yfirmönnum DSD, virðist það alveg ljóst að þessir yfirmenn DSD sem hér eru hafa litla eða enga reynslu af verki sem þessu, DSD hefur sjálfsagt alltaf haft undirverktaka sem hafa staðið sig vel, en skreytt sig með þeirra fjöðrum, jæja nóg af þessum hugleiðingum að sinni.

Annars er allt gott héðan að frétta úr Fljótsdalnum og þorrablótin byrjuð í sveitinni það næsta í Végarði á laugardag.

 

Kveðja HUE.

 

 



 



 


» 3 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
18. mars 2010
Klukkan
Landsvirkjun
Hálslón Kárahnjúkum
Eldey vefmyndavél.