Tenglar
Myndir.
Veðurstofa Íslands.
Morgunblaðið.
Alþjóðamarkaður LME
28.02.2006 15:24:10 / steini

28 febr 2006

Þriðjudagur 28 febrúar

 

Allt gott er að frétta úr Fljótsdalnum verkefnum hefur miðað sæmileg undanfarna viku . Lokið er álags og virkniprófunum á Stöðvarhúskrönum, byrjað er að setja upp skápa fyrir  vélakerfi og einnig er undirbúningur hafinn fyrir uppsetningu á kælikerfum véla og tæmikerfum fyrir Stöðvarhúsið.

Vinna í fallpípum gengur með betra móti, en farið er að sjóða handvirkt hætt með automatic suðu þar sem langan tíma tók að stilla búnaðinn af fyrir suðu.

Borverk gekk vel í viku 7 ríflega 524 metrar sem telst gott.

 

 

 

 

 

 

Skýringamynd sem sýnir hvar borarnir eru staddir.

 Kveðja HUE


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 11:01:16 / steini

22 febr 2006

22 febr 2006.

 

Þá er miðvikdagurinn runninn upp í hlýindum og góðu veðri 10°C .

Í gær 21 febr afhenti Fosskraft fyrri helming stöðvarhússins í Fljótsdalnum (fyrir vélasamstæður 1 til 3) til Landsvirkjunar á réttum tíma eina og þeirra var von og vísa, þannig að nú er hægt að hefjast handa við niðursetningu vél og rafbúnaðar af fullum krafti. Mannskap hefur fjölgað hjá KAR-30 og eru í dag 17 og á eftir að fjölga meira á næstunni, vinna þeir við móttöku rafbúnaðar og byrjaðir á uppsetningu kapalstiga og rafgeymasetta. Prófanir á Stöðvarhúskrönum eiga að hefjast í dag álagsprófanir og virkniprófanir.

KAR-36 Þar hefur miðað fremur hægt, lyfta upp í vinnupall þrýstipípu 1 hefur verið biluð síðan á sunnudag og hefur vinna því legið niðri við suðu röra þeim meginn, í þrýstipípu 2 er verið að klára vinnupall og í framhaldi að tengja lyftu upp í vinnupallinn sem líkur væntanlega í þessari viku.

KAR-33 Vel gengur uppi í (Bottom Outlet) botnrásum Kárahnjúkastíflu þar sem ATB Riva Ítalskt fyrirtæki er framkvæmdaraðili.

Einhver fylling hefur átt sér stað í Kárahnjúkastíflu að undanförnu, þar sem einmuna blíða hefur verið.

Borverk hefur gengið fremur hægt.

 

Kveðja HUE.

 

 



 



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 10:37:34 / steini

12 febr 2006

Fljótsdalur 12 febrúar 2006-02-12

 

 

Í dag er sunnudagur 12 febrúar, en veðurfar undanfarna daga hefur frekar verið eins og að vorlagi blíða upp á hvern einasta dag.

Framkvæmd verkefna hér í Fljótsdalnum hefur verið þokkaleg, Fosskraftsmenn á fullu að mála stöðvarhúshlutann sem  verður fyrir vélaeiningar 1 til 3 að auki er búið að mála miðbygginguna að stórum hluta.

Borverk í viku 5 var 255,2 metrar en eins og áður er TBM2 í tómum vandræðum vegna misgengis og einnig hefur TBM1 verið í viðhaldi og búinn að vera það alla síðustu viku, en talið er að hann byrji að bora um miðja viku7 (verið var að skipta um þétti við borkrónuna (þar sem rótorarnir eru sem snúa bornum) og er maður frá USA að sjá um það).

Af KAR-30 VATECH  vélaniðursetning er það að frétta að unnið er við sandblástur í sográsum 1 til 3 laga málningu sem skemmdist við niðursetningu og byrjað er að setja gúmmíþéttingar á sográsalokur. Stöðvarhúskranarnir verða virkni og álagsprófaðir í lok mánaðar. Starfsmönnum VATECH mun fjölga verulega uppúr miðjum mánuði.

Af KAR-36 DSD er það helst að frétta að búið er að slaka röraeiningu 251 fyrir þrýstipípu 1 niður og er það 4 röraeiningin þeim meginn (eftir eru 40) og fyrstu röraeiningunni í þrýstipípu 2. Í þrýstipípu 2 er mikill vatnselgur og gerir alla vinnu þar mjög erfiða. Framgangsmáti í stöðvarhúsinu þ.a.s. lagnir að vélum miðar þokkalega flöskuhálsinn er þrýstipípurnar.

KAR-33 Inntaki og Botnrásum þar eru ATB Riva, en þeir eru komnir aftur eftir áramót og byrjaðir þar sem frá var horfið fyrir áramót við Botnrásirnar, starfsmenn ATB Riva virðast vita hvað þeir eru að gera og gengur vel eftir þá.

 

 

Kveðja HUE: :^)



 



 


» 1 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
15. mars 2010
Klukkan
Landsvirkjun
Hálslón Kárahnjúkum
Eldey vefmyndavél.