Fljótsdalur 10.9.2006
Í gær laugardaginn 9 sept lauk bor (TBM1)
við að bora sinn verkþátt frá aðgöngum1 í átt að Hálslóni
(Kárahnjúkum) hafði hann þá lagt af baki um 16km og verður hann nú
fjarlægður. Borarnir TBM2 og TBM3 eru að bora á móti hvor öðrum og
eiga eftir tæpa 2km þar til þeir mætast. Fljótlega verður TBM2
tekinn og snúið til borunar upp í Jökulsárveitu (Hraunaveitur) sem
ljúka á 2007 er það um .
Vinna í stöðvarhúsinu í Fljótsdal miðar
ágætlega og eru flestir verkþættir á áætlun.
Fékk heimsókn um helgina Sigurveig kom við
sjötta mann og var farinn skoðunarferð að
Kárahnjúkum,
Hraunaveitum og í Fljótsdalsstöð.
Fór að bornum sem var að byrja borun á
sveiflugöngum 2 (borað er lóðrétt niður í aðrennslisgöngin um 2,5km
frá lóðréttu fallgöngunum) en útreikningar sýna að
sveiflugöngin sem búið var að gera upp frá aðgöngum 1 nægja ekki og
var því farið í að gera önnur.
Leiðin lá til Húsavíkur laugardaginn 2 sept
í jarðarför, en þar var verið að jarða Jón Ó Hermannsson frá Bergi
í Flatey á Skjálfanda, undir hans leiðsögn vann ég sem unglingur,
en það voru forréttindi að hafa kynnst og unnið með slíkum manni
sem Jóni heitnum, hann hafði alla þá kosti sem geta prýtt góðan
mann.
Veðrið hér hefur verið megð besta móti
undanfarna daga sólskin, en dálítill vindur.
Kveð að sinni HUE.