Tenglar
Myndir.
Veðurstofa Íslands.
Morgunblaðið.
Alþjóðamarkaður LME
24.02.2007 08:04:15 / steini

24 febrúar 2007

Laugardagur 24 febrúar. 

Afmæliskveðja hún Heiða R Jónasdóttir sambýliskona mín á afmæli í dag og óska ég henni innilega til hamingju með daginn.  Hún á afmæli í dag!!!! Hún á afmæli í dag !!! o.s.f.v.

Veðrið hér fyrir austan hefur verið ágætt að undanförnu NA átt og hiti undir frostmarki.

Unnið er nú á fullu að því að gera rafala1 hér í Fljótsdalsstöð að mótor, en það er gert til að auðvelda flutning á raforku til Fjarðaráls um byggðalínu þ.e.a.s. frá Kröflu og Sigöldu.

Steypuvinna er á fullu í göngunum ofan frá Hálslóni, bæði viðgerðir styrkingar og gerð grjótgildra.

Á morgun verður veitulokinn frá Jökulsárveitu settur á sinn stað inni í lokahvelfingunni er þatta loki sem vegur 52 tonn.

Í vikunni var ég ásamt fleirum á námskeiði á vegum Vinnueftirlitsins og var verið að fara yfir það sem er mest inni í dag þ.e.a.s. gerð áhættugreiningar, nú þarf að áhættugreina öll verk áður en farið er að vinna við þau.

Prófanir á búnaði í stöðvarhúsi eru í fullum gangi og er þar að mörgu að hyggja til að vel takist til. 

Kveð að sinni HUE.


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 14:47:31 / steini

10 febrúar 2007

10 febrúar 2007.
Vikan sem er að líða var með kaldara móti frost hefur verið á bilinu 12 til 14°C á láglendinu í Fljótsdalnum, en mun kaldara uppi við Kárahnjúka um og yfir 20°C veður hefur samt verið mjög stillt.
Vinna gengur vel í stöðvarhúsinu og eru verk þar á áætlun. Lokarnir fyrir fallpípurnar í aðgöngum1 og Jökulsárveitu hafa verið að koma í vikunni og unnið er á fullu að ljúka þeim verkþáttum sem þarf, til að geta tengt lokana, til gamans má geta þess að þeir vega rúm 50tonn hver.
Heima var hafður þorramatur á föstudagskvöldið 2 febrúar, en það hefur verið til siðs hjá frændfólki sem býr í Rvk og nágreni að skiptast á að halda blótið.
Línumenn Landsnets hafa unnið hörðum höndum undanfarnar vikur við að ljúka uppsetningu Fljótsdalslínur 3 og 4, og er því verki nú lokið, og farið er að flytja orku eftir Fljótsdalslínu4, niður á Reyðarfjörð.
Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo vinnur við frágangsverk inni í göngunum ofan frá Hálslóni og víðar. Gera þeir td: stórar grjótgildrur í botn gangana á þremur stöðum til að hindra að aðskotahlutir og hrun geti borist ofan í vélarnar.
Kveðja HUE.

» 1 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
15. mars 2010
Klukkan
Landsvirkjun
Hálslón Kárahnjúkum
Eldey vefmyndavél.