Fór í gær gönguferð niður með Jökulsá í Fljótsdal ásamt Berglindi. Við hófum gönguna skammt fyrir neðan Jökulsárveitu sem er vatnssöfnunarsvæði fyrir Fljótsdalsstöð og blandast vatninu ofan frá Hálslóni við Aðgöng2.
Jökulsárveita er að mestu leyti Jökulsá í Fljótsdal og Kelduá. Uppistöðulónin sem nú myndast heita Ufsalón, Kelduárlón og Grjótárlón, en brátt mun framkvæmdum á þessu svæði ljúka og áætlunin er að loka fyrir rennsli Jökusár í Fljótsdal um 20 ágúst og mun þá rennsli árinnar að mestu hverfa, en safnast fyrir í Ufsalóni. Önnur svæði sem eftir er að tengja við þessa veitu td: Sauðárvatn mun bíða fram á næsta ár. Sjá Kort.

Gönguferðin gekk í alla staði vel utan þess að fá hælsæri og blöðrur og tók ferðin niður að innstu bæjum í Fljótsdal (Norðurdal ) rétta 4 klst.
Mikið er um smáflúðir og fossa á leiðinni, en ætlunin er að hleypa vatni á Jökulsána yfir sumartímann.
HUE