Byrjaði vinnu í Fljótsdalsstöð 22 sept eftir sumarfrí, en þar gengur allt sinn vana gang og er framleiðslan Fljótsdalsstöðvar nú um 600MW.
Meðan ég var í sumarfríinu var afhjúpað og sjósett fley eitt fagurt í frárennslisskurðinum frá Fljótsdalsstöð og ber það listamanninum Ólafi Þórðarsyni fagurt vitni, listaverkið heitir Eilífðardraumurinn. Dæmi nú hver fyrir sig, það vekur í það minnsta athygli.

Hálslón er ennþá á yfirfalli og verður eitthvað fram í okt háð veðri. Ætlunin er að opna fyrir vatn frá Jökulsárveitu (Hraunaveitu) í lok næstu viku og verður þá farið að nýta vatn þaðan að hluta til á móti vatni frá Hálslóni.
Heiða er í Rvk þar sem hún hefur ekki fengið vinnu hér fyrir Austan enn sem komið er.
Blíðuveður hefur verið hér síðustu viku og í dag sama sagan.
HUE